個人檔案...ísarÁsDísarÁsDísarÁsD...相片部落格清單 工具 說明

Benediktsdóttir Ásdís

第 1 張 / 共 27 張
13 February

Ég er komin með nýtt blogg!

Jújú, konan er alllltaf að skipta!

Núna er það: disa1337.wordpress.com

Hvað er svona spes við það? Jú, núna get ég bloggað beint úr tölvunni minni án þess að opna vafra! Blogga bara beint úr 'panelnum' :D

Ennfremur þá þarf ekki að skrá sig inn til þess að geta kommentað ;)

Kíkið endilega á það...
7 December

Malt

Ég undanfarna daga drukkið soldið af jólaöli í tilefni af því að jólin eru að koma. Í æsku minni fékk ég yfirleitt bara appelsín vegna þess að mér fannst maltið svo vont. En viti menn, Ásdís sá ljósið. Núna drekk ég malt eins og ég fengi borgað fyrir það :D

Allavega..

Mér fanns bara svo sniðugt að lesa utan á maltdósina, þar stendur:

'Nærandi og styrkjandi, gefur hraustlegt og gott útlit. *Bætir meltinguna*'

Ég veit svo sum ekki hversu rétt þetta er, en það er alltaf gott að vera aðd rekka eitthvað vitandi að maður verður fallegur af því!
4 December

4.dagur Desember mánaðar...

Er genginn í garð! Skrýtið að vera ekki að fara í fimm próf  - bara eitt. Aðeins afslappaðra en vanalega, en samt verður maður að drulla sér fram úr á morgnana ;)
 
Ég mætti í bútið í morgun klukkan hálf níu (tímar okkar systranna eru reyndar klukkan hálf átta) og sá þar enga systur. Fannst það rosalega skrýtið! Þær eru orðanar svo duglegar að 'sofa' aðeins lengur ;)
 
Annars er maður farinn að pæla í Hawaii - skoða skólann og svona :) Soldið skerí samt að vera að fara kannski hinu megin á hnöttinn í lengri tíma
 
Pipakökur voru bakaðar á fimmtudaginn í Dísarásnum og svo aftur í Hrísholtinu (bústaður foreldra Tryggva) á laugardaginn! Dugnaður í minni. Þrátt fyrir þetta er BANNAÐ að kalla mig Ásdísi piparkonu ;)
 
Ég er víst í heimaprófi og ætti að halda því áfram :D
 
 
2 December

Jólin koma, jólin koma brátt

Jújú, mikið rétt: jólin koma eftir 22 daga! Pælið í því!! :)

Hver man ekki eftir stjörnustráknum 'Bláma' eða eins og við Auður köllum hann alltaf 'Blámann'. Jóladagatalið ´92 eða ´93 (eða eitthvað álíka). Það er allavega uppáhaldið mitt og vill svo til að sjónvarpið er að sýna það þessi jól - loxins!

Ég er í heimaprófi, fer í próf 12. des og skila svo verkefni 20.des. Þá er maður barasta búinn :D Ég hlakka svo til...

13 July

Hola chicas!

Góðan daginn!

 

Jújú, mikið rétt - ég er ekki dauð! Ég hef verið að hanga hér í Mörkinni í sumar. Sökum annríkis í hléunum hef ég ekki gefið mér tíma í að blogga en hír it koms.

 

Við erum með internettengingu hér! Hverjum hefði dottið það í hug? Við tengjust gegnum GPRS í gsm síma. Gengur hægt en gengur þó.

 

Í þessum tveimur (eða segir maður tvem?) hléum sem ég hef fengið hef ég aðallega verið að stússast í kringum sumarkúrsinn sem við vorum með hér í BEST á Íslandi fyrir 25 útlendinga. Það gekk vel - mikið lagað til, dansað, spjallað og drukkið bjór

 

Stefnan er tekin á fimmvörðuhálsinn á sunnudaginn í hinni vikunni með Tryggvanum og svo á Svíþjóð til þess að  hlýða á vörn mastersverkefni Trixans.

 

Ég hoppaði aftur á bak um 20 sæti á biðlistanum fyrir stúdentagarðana núna um síðustu mánaðamót!! Ekki alveg nógu (og) sátt við það. En svona er þetta bara...

 

Verð að fara hádegisrútan var að koma!!!

 

Dísa Þórsmerkurskvísa

2 June

'Ketill úr Mörk...

...bróðir Þráins, kvæntur Þorgerði Njálsdóttur, talar við Þráin um að bæta þeim Helga og Grími vesenið sem þeir lentu í út af Hrappi, en ekkert kemur út úr því. Njáll hvetur Helga og Grím til að bíða átekta.'

Þetta má lesa í 91. kafla í Njálu. Eins og spakir, glöggir og Auðir Heilar geta sér rétt til um þá er Mörkin sem vitnað er í Þórsmörk. Þar verð ég í mest allt sumar, já, ég verð sveitungur í sumar.

Ásdís úr Mörk...hljómar ágætlega

Fyrsta ferð sumarsins var farin inn eftir á þriðjudaginn var og heppnaðist líka svona vel. Fengum bjór og koníak um kveldið og slökuðum á í nýrri laug, Þórslaug. Daginn eftir var hafist handa við tiltekt og tilheyrandi. Ég stoppaði nú ekki lengur en til 15 þegar ég hélt heim á leið ásamt 2 öðrum. Hinir voru skildir eftir.

Fer aftur inn eftir á sunnudagsmorgun (4.júní) og kem ekki heim fyrr en að kveldi 18.júní (Auður Heili reiknar þetta sem 15 daga). Sem sagt, 17. júní teiti þar

Gekk ágætlega í prófum, allar einkunnir komnar heim. Mamma og Pabbi stungu af til Krítar og Berglind er einhversstaðar að þvælast um á vestur strönd Bandaríkjanna eða Mexíkó Við Auður erum því einar heima og stöndum okkur með prýði (komið af prúður sjáiði til! - það eru fleiri góðir í íslensku en sumir).

Við gerðum Calzone í kveld...ótrúlega gott! Massa kokkar við Auður (ég var þó aðalkokkurinn, Auður var meira svona auka ).

Yfir og undir...
Ásdís


14 May

Það eru 13 tímar í próflok!

Vildi bara deila þessu með ykkur :)